Thursday, October 31, 2013

Ghosts

Dagur 2 á Airwaves að hefjast, það sem ég elska þessa hátíð! Það er alveg til skammar að ég hafi síðast farið árið 2007, læt þetta ekki koma fyrir aftur ! En ég hugsa að ég hafi ekki mikin tíma fyrir blogg næstu daga og komi með eina stóra færslu um hátíðina þegar henni er lokið.


-ellen agata

Tuesday, October 29, 2013

Diljá Heimis

Nú fékk ég hana Diljá Heimisdóttur til að sýna mér og segja frá sínum húðflúrum. Flott stelpa með flott flúr.!



Nafn? Diljá Heimisdóttir
Aldur? 21. árs
Nám/starf? Ég er í Tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík og vinn smá með skóla hjá já.is.

Hvað ertu með mörg húðflúr?
Ég er með sjö tattoo í heildina. Fyrsta tattooið sem ég fékk mér var demanturinn. Ég fékk mér það á tattoo festivali árið 2010. Annað tattooið sem ég fékk mér var á Þorláksmessu árið 2010. Þá fór ég ásamt 3 systrum mínum á Reykjavík Ink til Mike og við fengum okkur allar Heimisdóttir tattoo en á mismunandi staði. Í byrjun sumars 2012 fór ég til Tyrklands og fékk ég mér fuglana 3 á hendina og seinna um sumarið fékk ég mér peace merki á bakið. Í nóvember 2011 fékk ég svo þessa "frábæru" hugmynd að leyfa vini mínum að setja eitt flúr á mig. Hann tattooaði kross á mig sem ég fór svo og lét laga nákvæmlega ári seinna. Þá fór ég til Jóhönnu Geirdal og fékk mér fallega bæn á síðuna og hún reyndi að bjarga krossinum sem ég lét vin minn gera.
Núna í september byrjaði ég svo loksins á sleeve-inu mínu sem mig hefur dreymt um alltof lengi. Ég fór á Tattoo Expo og fékk tíma hjá Sigga Palla frá Mótorsmiðjunni. Ég kom til hans á laugardeginum með hugmyndir og við spjölluðum, brainstormuðum og komumst að niðurstöðu. Á sunnudeginum fékk ég mér svo sugarskull/dia de los muertos. Í oktober bætti ég svo við rósinni vegna þess að við höfðum ekki tíma til að setja hana á tattoo festivalinu. Það er ekki ákveðið hvenær ég bæti við næst, en ég ætla samt að halda áfram með svona old school þema.

Hvernig finnst þér viðhorfið við húðflúrum? Það eru rosalega skiptar skoðanir á flúrum. Sumir segja að þetta sé bara fyrir glæpamenn, aðrir fyrir sjómenn o.s.f. Maður finnur fyrir því hvernig fólk horfir á mann sem finnst þetta ekki flott. En hinsvegar hef ég fengið mörg hrós og spurningar í sambandi við tattooin mín og þá sérstaklega það nýjasta og það er auðvitað alltaf gaman. En ég elska tattooin mín og ég sé alls ekki eftir því að hafa byrjað á þessu. Fólk hefur skiptar skoðanir á öllu og fólk þarf bara að læra að vera það sjálft og hætta að dæma aðra :)

Draumahúðflúr sem þig langar í?  Ég hef átt mér draumaflúr í nokkur ár sem er andlitsmynd en hún er smá leyndarmál. En það ætti nú að fara að styttast í að hún fái að bætast við í safnið.

Finnst þér sársaukafullt að fá þér húðflúr? Það getur verið sársaukafullt já. Þegar ég var í sleeve-inu þá var þetta alls ekki vont til að byrja með, en eftir svona 4 tíma þá var ég orðin mjög þreytt og þá var hann að skyggja í hárið á stelpunni og það var akkúrat á beininu. Hann var að fara ofaní aftur og aftur og þá byrjaði ég að svitna og vildi helst bara standa upp og fara. En þetta er allt þess virði þegar uppi stendur :)

Hvaða stað á líkamanum myndir þú aldrei fá þér húðflúr? 
Einu sinni var ég næstum því búin að fá mér flúr nálægt andlitinu, en sem betur fer náði mamma að tala mig út úr því og er ég ævinlega þakklát fyrir það,  ég myndi aldrei fá þá hugmynd aftur.



Fimm spurningar með hraði
Einn tveir og byrja!


Uppáhalds tónlistarmaður? Arnór Dan/Svala Björgvins.
Uppáhalds bíómynd?  Naked Gun myndinar
Við hvað ertu hrædd/ur? Ég get verið rosalega myrkfælin
Hvar líður þér best? Uppí rúmi
Hverjum ertu skotin í? Ian Somerhalder



Framtíðarsýn?  Ná markmiðum mínum, skoða heiminn og njóta þess sem lífið hefur uppá að bjóða.

Lífsspeki:  "The most important thing is to enjoy your life - to be happy - it´s all that matters."  Audrey Hepburn












Takk fyrir þetta Diljá!
-ellen agata

Sunday, October 27, 2013

I´m Shakin´

Hinn fínasti laugardagur. Gerði mér smoothie eftir ræktina í morgun. Notaði aðallega það sem lág undir skemmdum í ísskápnum.
Það sem ég notaði: lítið avokadó
                              gulrót
                              gúrkubita
                              salat
                              frosin jarðaber & bláber
                              2 lítil lime
                              2msk grískt jógúrt
                              chia fræ
                              klakar & smá vatn




Hefði mátt vera aðeins sætari en samt sem áður var hann góður.

Fór á tónleika með kórnum sem mamma mín syngur með. Mjög svo huggulegir tónleikar með skemmtilegum lögum.


Þessar systur eru sko.....


Hef verið mjög feimin við að setja outfit myndir af sjálfri mér en... F... it!

Kvöldið fór síðan bara í rólegheit og snapchat brjálæði. Hlaða batteríin fyrir næstu helgi. ICELAND AIRWAVES!!

-ellen agata

Friday, October 25, 2013

Too Much

Drake svíkur engan...eða allavega ekki eyrun á mér.





-ellen agata

Tuesday, October 22, 2013

The Apology

Ég elska kimono! Mér finnst það gera svo mikið fyrir einfalt outfit, setja punktinn yfir i-ið. Svo skemmir ekki fyrir að á mörgum þeirra er kögur sem ég er svona hálfpartinn háð.

Skelli hér í nokkur falleg sem ég hef verið að skoða undanfarið.



Þetta fallega kimono fæst HÉR
ASOS

ASOS

ASOS

Aftur er með ótrúlega mikið að gullfallegum kimonos.

-ellen agata

Sunday, October 20, 2013

Digital Lion

Ég fór í skemmtilega afmælisveislu hjá versluninni Kassettu á Laugarveginum síðastliðinn föstudag. Kassetta er ein af mínum uppáhaldsbúðum á Laugarveginum og hefur að geyma ýmsa fjársjóði  Mæli með að þið kíkið við næst þegar þið eigið leið framhjá!




Vörur frá Pretty Snake. En hönnuður merkisins er Joseph Aaron Segal sem tók þátt í Project Runway.






Ótrúlega fallegar peysur eftir Öglu Stefánsdóttur.


WOO kertin sem ég elska! Ég á einmitt eitt svona sem ég tími varla að kveika á vegna þess hvað það er góð lykt af því. Vil ekki að það klárist! Mæli með að þið skoðið heimasíðu WOO og kynnið ykkur aðeins meira um þau.





Ótrulega falleg og áhugaverð verslun sem gaman er að koma í og skoða. Ég að sjálfsögðu gekk út með lítinn poka en í honum var hárband sem Sessa eigandi verslunarinnar gerir sjálf ásamt mörgu öðru. Ég mun sýna ykkur hárbandið við tækifæri. 

Afsaka léleg myndgæði, var aðeins með símann minn við hönd.

-ellen agata


Thursday, October 17, 2013

Stormur

Ææi Sigur Rós er bara e-ð að grínast í mér með tónlistinni sinni. Þvílíkur unaður!




-ellen agata

Saturday, October 12, 2013

Basic Space

3 skemmtileg og falleg húðflúr á flottum laugardegi.






Ég ætla að halda smá innflutningsteiti í kvöld og ætla að gleyma meistaramánuðinum í smá stund...úpps!

Góða helgi.

-ellen agata

Tuesday, October 8, 2013

Lesson Learned

Haustlín Emerson Fry er að mínu mati fullkomin fyrir komandi vikur og mánuði. Sniðin og litirnir eru svo falleg að mig nánast langar í hverja einustu flík.







Ég er algjörlega með stjörnur í augunum yfir þessari bláu kápu. Langarííí! 

-ellen agata

A Wolf At The Door

Fyrsta vika í Meistaramánuði búin og hún gekk bara þokkalega. Ekki mikið um snooze, mataræðið hefði reyndar mátt vera betra og ég á ekki mikið eftir af Sjálfstæðu fólki. Ég eldaði líka mjög góð lkl máltíð fyrir fjölskylduna um daginn sem lukkaðist líka svona rosalega vel. Fylltar kjúklingabringur og blómkáls- og brokkolígratín. UMMM hvað þetta var gott!



Annars þá var ég að flytja í Vesturbæinn um síðustu helgi.Svo gott að vera komin aftur í sína eigin íbúð þó ég hafði það virkilega gott hjá mömmu og pabba. Íbúðin er rosa fín og mér líður strax vel. 



Tók þessa mynd í morgun þegar ég labbaði í vinnuna. Fallegt útsýni sem ég er með! Love it.

-ellen agata