Thursday, March 27, 2014

Runaway Baby

Fór á árshátíð Icelandair Group um daginn og skemmti mér konunglega. Icelandair kann svo sannalega að halda gott partý !


Var í þessum gullfallega Michael Kors kjól sem ég tók ekki nægilega góðar myndir af. Fullkominn kjóll. Bæði virkilega fallegur og svo líka ótrúlega þægilegur. Gat allavega dansað eins og brjálæðingur í honum. Fékk síðan Ólöf Birnu systur til að gera hárið á mér og make-up. Þvílíkur snillingur sem hún er.!

Gull!
Þessar dömur brjálæðislega fab!
Retro Stefson




Ég ætla síðan ekkert að ljúga, svona var ástandið á mér í enda kvöldsins.



En það var allavega fáránlega skemmtilegt og mikið búið að hlægja af þessu kvöldið. Ég er í alvöru brosandi þegar ég er að skrifa þetta. 

-ellen agata

Wednesday, March 12, 2014

Dancing On My Own

Árshátíðarseason er í núna í fullum gangi og er ég að fara á tvær árshátíðir í ár. Oftar en ekki eru þetta langir dagar, það tekur sinn tíma að gera sig til og svo er oft byrjað snemma, farið í fyrirpartý og svo tjúttað fram á nótt. Það er því gríðarlega mikilvægt að vera í góðum skóm! Í fyrra gerði ég þau hræðilegu mistök að velja feguð yfir þægindi og þurfti sko heldur betur að borga fyrir það. Fór heim að skipta um skó og allskonar vesen. Nú ætla ég ekki að lenda í því og er að leita mér að hinum fullkomnu árshátíðarskóm. Þægilegir og fallegir.

Hér eru nokkur pör sem ég hef fundið og held að ég gæti endast í allt kvöldið. Mikilvægt er að ef þú kaupir þér nýja skó að vera búin að ganga þá vel til áður en þú notar þá. Svo er einnig afskaplega gott að vera með lágbotna skó í veskinu eða úti bíl til að hafa til skiptanna.

 asos
 asos
 new look - þessir eru líka sjúkir fyrir sumarið!
 river island
river island

-ellen agata

Sunday, March 9, 2014

Impossible Soul

Sunnudagar eru ekkert alveg uppáhalds dagarnir mínir eru stundum full rólegir fyrir minn smekk. Þeir eru yfirleitt nýttir í það að þvo og þrífa og svo er líka stutt í mánudaginn sem þýðir að fríið sé búið. Reyndar fer ég oft til mömmu og pabba á sunnudögum til að fá huggulegan mat, sem er gott. Sunnudagurinn sem senn er að líða var hinsvegar alveg ágætur.


Morgunmatur og House Of Cards.
Æfing í World Class útá Nesi.

 Kaka í kef þar sem systir mín átti afmæli.

-ellen agata

Tuesday, March 4, 2014

Fancy

Er að elska þetta myndband með Iggy Azalea !! Clueless er klárlega ein af uppáhalds. Man þegar ég var yngri og horfði á fataskápinn hjá Cher með stjörnur í augunum. Þvílíkur draumur !


-ellen agata

Sunday, March 2, 2014

Go Your Own Way

Sá þetta skemmtilega poster sem er viðeigandi fyrir kvöldið. Mér finnst alltaf spennandi að sjá hvað kjólar verða fyrir valinu á þessari hátíð.


Held að mér finnist Grace Kelly 1955, Hilary Swank 2005 & Jennifer Lawrence 2013 standa uppúr þó þeir séu nú flestir allir mjög fallegir.

-ellen agata